The Word On The Street
Pilots
Vinir og Kunningjar
13.06.2006 12:16:01 / Geiri

Hættur í bili

Jæja, það hlaut að koma að því. Ég hef ákveðið að taka mér pásu frá þessu í bili. Er bara ekki að nenna þessu og mikið að gerast hjá mér núna. Aldrei að vita nema ég fái aftur fiðringinn fyrir þessu en þangað til, takk fyrir að kíkja á þessa síðu hjá mér. Þið getið haldið áfram að sjá hvað er að gerast hjá mér í hljómsveitinni og svo er það auðvitað síminn og msnið.

Take care og takk fyrir góðar stundir

Ásgeir Orri


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 16:34:28 / Geiri

What up!!!

Hostile hélt tónleika á Grand Rokk síðasta laugardag við frábærar viðtökur. Ég hef aldrei spilað á eins góðum tónleikum eins og þá og alveg greinilegt að Hostile er búið að stimpla sig inn hjá rokkurum Íslands. Mr. T og Lúlli voru magnaðir í því að halda stemmningunni og slömmuðu allan tíman og fyrr en varði þá var gólfið orðið fullt af slömmurum að dansa í takt við ljúfa hljóma. Myndir voru teknar af þessu og getið þið séð þær hér. Checkið á þessum myndum.    http://www.theinternet.is/grandrokk/index.htm

 

 



 

Eurovision var eins og því var spáð með okkar land. Djöfull er ég samt ánægður að Lordi tók þetta enda kominn tími á rokkið og hætta með þetta helvítis europopp og Balkansskaga drasl. Svaka show sem að þeir voru með og þetta eru með þeim flottari búningum sem að ég hef séð. Verst að þessi eini sem að söng bakraddirnar hafi verið með ofnæmi fyrir latexi og því bara málaður. Sylvía skeit á sig eins og maður átti svo sem von á þar sem að yfirgangurinn hennar var orðinn allt of mikið. Þetta er fyndið upp að vissu marki og þetta mark var svo aldeilis slegið hjá henni. En voðalega eru Grikkir viðkvæmir. Bara púað á allt og alla. Spurning um að taka hausinn út úr rassgatinu á sér og sjá skemmtanagildið í þessu en ekki alla þessa alvöru.

Lordi

Það styttist óðfluga í utanlandsferðina mína og hefur maður verið núna í sambandi við alla vinina sem að maður kemur til með að hitta þarna úti . Þetta verður æðislegt. Kærustur vina minna hafa meira að segja verið að senda mér skilaboð á myspace síðunni minni til að kynna sig fyrir mér og segja hversu mikið þær hlakki, eða þau, hlakki til að sjá mig. Gaman að fá svona :)

Segjum þetta gott í bili. Lag dagsins er Let it Bleed með The Used. Frábært lag.

BTW, það eru komin lög á Hostile síðuna. Checkið á þeim                                       

www.myspace.com/hostiletheband    og   www.hostile.is


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 13:26:57 / Geiri

Allt að gerast!!!

Hvað get ég sagt?? Allt að gerast. Þegar ég ætlaði að skrá mig inn á blog.central.is og uppfæra bloggið mitt þá var mér boðið að fara yfir á minnsirkus.is. What the hell, fer bara yfir á það. Það virðist ætla vera svona eins og myspace.com síða. Hægt að bæta við vinum og fleira og fleira. Er reyndar ekki búinn að skoða þetta allt saman en allar breytingar eru góðar, eða svona oftast. Nýja addressan er rokkpilot.minnsirkus.is

Annars hef ég mjög góðar fréttir að færa. Haldiði að kallinn sé ekki bara orðinn einkaflugmaður!!! Langþráður draumur orðinn að veruleika. Þetta afrek gerðist í gær og ætla ég að segja ykkur frá þessu.

Eftir að hafa talað við prófdómarann minn í síma daginn áður var ég mættur upp í skóla klukkan níu og flugið átti að hefjast klukkan tíu en áður en farið yrði í loftið yrði munnlegt próf. Gekk munnlega prófið nokkuð vel og eftir spurningarnar var farið upp í vél og hún gerð tilbúin til flugs. Prófstaður okkar var Stóri Kroppur hjá Borgarnesi. Á leiðinni spurði hann nokkrar spurningar sem tengdust fluginu. Flugplanið mitt var í gegnum Akranes en þegar við vorum komnir að Viðey sá ég fram að ég þyrfti að breyta aðeins planinu mínu og hafa það í gegnum Grundartanga. Prófdómarinn var ánægður með þessa breytingu hjá mér og var mjög gott veður þar sem eftir leið leiðarinnar. Þegar komið var að Stóra Kroppi fórum við í lendingaræfingar og neyðarviðbrögð og stall æfingar og beygjuæfingar. Lendingar hefðu getað verið miklu betri en eftir því sem leið voru þær orðnar mjög góðar. Næst sagði hann mér að klifra í 2000 fet á brautarstefnu. Um 800 fet dró hann aflið af og átti ég að taka 180 gráðu beygju og lenda aftur á brautinni. Það gekk ágætlega en mætti hafa gengið betur að mínu mati en það skipti greinilega ekki máli.



Eftir allar þessar æfingar var haldið í bæinn þar sem að éljabakki var að fara að skella á okkur. Hann bauðst svo til að taka lokalendinguna í bænum þar sem að hann sagði að það hefði verið svo langt síðan hann hefði flogið svona litlum vélum enda flugstjóri hjá Icelandair. Eftir lendingu og við komnir upp í skóla sagði hann að það hefði alveg gleymst að gera after landing checklist og before landing checklist. Djöfull leið mér þá illa. Ég steig út úr vélinni með það í huga að ég hefði ekki náð prófinu. Þegar við komum svo inn spurði hann hvort að við ættum ekki að fara að klára þessa pappírsvinnu. Þá kom eitt stórt bros á mig og vellíðan. Eftir alla þessa pappírsvinnu tók hann í höndina á mér og sagði "Til Hamingju, þú ert orðinn flugmaður" :D  Bestu orð sem að ég hef heyrt. Þegar ég steig svo út úr skrifstofunni þá sá ég Eygló, gamlan bekkjarfélaga úr einkaflugmannsnáminu, sem að spurði hvernig hefði gengið. Eftir að hafa talað við hana í dágóðastund ákváðum við að skella okkur yfir og tala við aðra bekkjarfélaga okkar úr einkaflugmanninum. Gaman að hitta þetta lið aftur enda miklir snillingar.

Það sem eftir var dagsins var ég með þetta sólheimaglott á mér :)

Lag dagsins er Times like these með Foo Fighters. Þetta eru svo sannarlega Times like These sem að maður gleymir aldrei.

Einkaflugmaður #4749

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 13:29:29 / Geiri

Bloggfærsla mánaðarins!!!

Voðalega er maður eitthvað latur að blogga hérna. Ég virðist bara blogga nánast einu sinni á mánuði þannig að það er komið að bloggfærstlu apríl mánaðar :)

Gleðilega páska. Páskarnir hjá mér voru nokkuð góðir. Var samt meira og minna að vinna þá alla en fékk frí á páskadag og annan í páskum. Nú þar sem að foreldrar mínir voru erlendis um páskana þurftum við bræðurnir að redda okkur sjálfir með mat. Var það nú samt alveg löngu planað. Á meðan aðrir voru að gæða sér kannski á lambi eða einhverju álíka þá fengum við bræðurnir okkur hamborgara a la pops. Þið kannskið spurjið hvurs lags hamborgarar eru það? Það eru hvorki meira né minni 300-350 gramma hamborgarar, kryddaðir eftir fjölskyldu uppskrift sem að pabbi kenndi mér og svo eru þeir grillaðir og sett á þá spælt egg og borðaðir með frönskum og kokteilsósu. Litli brósi misreiknaði sig aðeins þegar hann keypti hakkið og keypti eitt kíló af hakki í stað 600 gramma. Enda voru þá gerðir 5 hamborgarar :) Þetta tókst allt mjög vel og voru menn saddir eftir þessa máltíð.

Ég fór í progress check hjá skólanum sem er svona hálfgert próf áður en ég fer í lokaprófið hjá flugmálastjórn. Gekk það bara þrusuvel og þarf ég núna að bóka próf hjá FMS og punga út 30.000 kalli fyrir það ásamt að borga fyrir vél. Þetta á eftir að kosta sitt. Þegar það er búið þá er ég orðinn einkaflugmaður, get varla beðið enda búinn að lofa nokkrum að taka þá með í flug. Manni og Kiddi, vinnufélagar mínir, hafa aldrei farið til Eyja þannig að það er á dagskránni, engin spurning. Svo auðvitað fjölskyldumeðlimir og fleiri.

Djöfull dreymdi mig óþægilegan draum í nótt. Mig dreymdi að ég hefði verið drepinn, tvisvar. Einu sinni skotinn og einu sinni lenti ég í sprengingu. Ég sá blóðið á mér renna eftir götunni og allt dofna upp. Virkilega óþægilegt.

Lag dagsins er Comfortably Numb með Pink Floyd.


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 17:48:10 / Geiri

Þá er komið að því!!!

Well, what do you know. Kominn tími á nýtt blogg enda orðnar 3 vikur síðan ég skrifaði síðast. Maður hefur oft kíkt á þessa síðu og hugsað með sér "á ég að fara að blogga í dag eða...?". Svo bara gerist ekkert. Maður fer frekar að skoða bloggsíður hjá öðrum eða eitthvað sem að tengist flugi.

Annars voru mér sýndar myndir í gær frá Grænlandsferð. Mjög flottar myndir og flott land fyrir utan hversu miklir villimenn Grænlendingar eru. Allt er gert upp á ferðaiðnaðinn þarna og fólk klæðir sig upp þegar vélar frá Íslandi koma. En þegar ég tala um villimenn þá er það aðallega út af einu. Hundum er bara gefið einu sinni að éta á viku á sumrin vegna þess að þeir hafa enga þörf fyrir þá. Þar af leiðandi eru margir hundar sem að eru bara að veslast upp og deyja. Ekki nóg með heldur sá ég líka mynd af lítillri eyju þar sem að á henni voru nokkrir hundar sem að höfðu verið skildnir eftir þar. Svo gelta þeir þegar ferðamannabátar sigla framhjá eflaust vegna þess að þeir eru svo svangir. Þetta finnst mér alveg skelfilegt. Það hlýtur að vera hægt að gera eitthvað í þessu þrátt fyrir mikla fátækt þarna.

Tónleikar með Hostile voru á Bar 11 á föstudagskvöldið. Með okkur spiluðu Morðingjarnir og Thingtak (áður Alþingi). Tónleikarnir heppnuðust mjög vel í alla staði og er ég ekki frá því að flestir þarna hafi komið til þess að sjá okkur spila. Við frumfluttum eitt nýtt lag og tókst það bara nokkuð vel. Jonni var í góðum gír og kannski of góðum þar sem að hann mátti eiginlega ekki vera að því að spila þar sem að hann var svo mikið að spjalla við áhorfendur enda var hann mikið í glasi. Merkilegt að hann gat þó spilað á gítarinn. Næstu tónleikar verða væntanlega eftir ca. 5-7 vikur og þá á Grand Rokk með Innvortis og I Adapt.

Annars er ekki búið að vera mikið að gerast hjá manni þessar vikur sem að ég hef verið frá. Vinnan er alltaf á sínum stað ásamt fluginu. Núna á ég bara einn verklegan tíma eftir og svo fer ég í prófin góðu. Núna er ég farinn að taka frá pláss í flugferðalög ef að einhver vill koma með, skráning stendur yfir í kommentunum :)

Segjum þetta gott í bili. Lag dagsins er Reroute to Remain með In Flames.

BTW: er kominn með myspace síðu þannig að linkið mig á ykkur. www.myspace.com/sonnova


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 08:03:12 / Geiri

Titill!!!

Show must go on eins og Freddy Mercury sagði forðum. Maður er búinn að vera ótrúlega latur að blogga, það er eins og maður hafi bara engan áhuga á þessu lengur eða hafi bara alls ekkert að segja. Vonandi sé ég ljósið aftur seinna í þessum málum. Annars hef ég ákveðið að taka aðeins til í linkunum mínum og henda þeim út sem að hættir eru að blogga. Ekkert disrespect eða neitt svoleiðis, bara tilgangslaust að hafa einhverja síðu í linkunum sem að aldrei er update-uð.

Annars var algjör climax dagur í gær. Tvær þotur flugu framhjá sendiráðinu. Hvorki meira né minna en Boeing 747 þota Atlanta sem að var með óvissuferð fyrir starfsmenn sína. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar hún flaug yfir í 600 feta hæð yfir mér. Ég öskraði í talstöðina að júmbóþota væri að fljúga hérna yfir og Valli yfirmaður kom hlaupandi út enda flugáhugamaður líka. Seinna um daginn flaug svo ný vél Iceland Express yfir, MD-90, en það var bara ekki nærri því eins flott eins og Atlanta vélin. Samt gaman að sjá þessar vélar vegna þess að það er svo sjaldan sem að maður sér þotur fljúga í lágflugi yfir höfuðborginni. What a day :)

Afmælisdagurinn hjá mér var mjög góður. Fékk ég margar kveðjur frá vinum og fjölskyldumeðlimum sem var mjög gaman að heyra. Meirihlutinn var þó að samhryggjast að ég skildi vera orðinn þetta gamall en þetta er bara gangur lífsins. Maður fæðist, verður gamall og að lokum deyr maður. Ekkert hægt að gera í því nema að eitthvað komi upp á. En áfram um afmælisdaginn, hitti mömmu og Rúna á Sólon og var fengið sér smá svona afmæliskaffi. Það var mjög notalegt. Svo voru mellurnar Rannveig og Erla þar líka af skemmtilegri tilviljun. Þær voru víst bara að drepa tímann frekar en eitthvað annað. Um kvöldið bauð Helga mér svo á Café Óperu sem var þvílíkt gott. Alveg frábær matur og talandi ekki um eftirréttinn. Ég fékk einhvern afmæliseftirrétt með stjörnuljósi og sem betur fer engum svona afmælissöng. Ég þoli nefnilega ekki svoleiðis athygli, sekk alltaf í stólinn og bíð eftir að liðið klári lagið :) 

Eins og veðrið er búið að vera geðveikt þá hef ég ekki getað komist í loftið vegna anna hjá flugkennaranum mínum. Svolítið svekkjandi þar sem að ég á bara ca. einn tíma eftir og svo prófin. Vonandi verður einhver breyting á þessu og ég fari að fljúga í næstu viku. Verð eiginlega að treysta á það, nenni þessu ekki lengur. Ætti löngu að vera kominn með þetta skírteini.

Haldiði að kjallinn sé svo ekki byrjaður í nýrri rækt. Jújú, núna er ég kominn í Þrekhúsið í vesturbænum og fer nánast á hverjum degi með Manna sínum og öðrum crazy bastards. Þetta er allt annað líf þegar maður fer með einhverjum. Ég bara fann það að þegar ég var einn að standa í þessu að þá var maður eiginlega alveg hættur að nenna þessu. Ég var líka búinn að gefast upp á laugum, bílastæðavandamál og svo líka er annar hver maður á þessum stað. Betra að vera á litlum stað með góðum félögum og Bubbalíus Morthensi.

Segjum þetta gott í bili. Lag dagsins er Mama, I´m coming home með meistara Ozzy og meistara Zakk Wylde á gítar. Flott dúó í gangi þar.


» 17 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 04:43:11 / Geiri

Good Day, Sunshine!!!

Ekki mikið að frétta héðan frá en þó eitthvað. Hið ótrúlega, eða þannig, kom ekki svo mikið á óvart í gær þegar Sylvía Nótt kom, sá og sigraði í forkeppni júróvisjon með 70.000+ atkvæði. Fyrir mitt leyti er ég mjög sáttur við það að hún hafi nú unnið þetta þar sem að við eigum aldrei eftir að vinna þessa keppni einhverntíman og því er alveg eins gott að senda eitthvað rugl í þessa keppni. Ég held að með þessari landskynningu eigum við eftir að fá fleirri stig heldur en í fyrra, ég er alveg viss um það. Sjáum bara hvar Noregur var í fyrra með sitt djók :)

Eurovisionpartý/Staffadjamm var haldið heima hjá Valla í gær og mættum við næstum allir nema þeir sem að þurftu að vinna. Var mikið grillað og voru margir með hið fínasta gúmmulaði til að slátra í sig. Bjórinn flæddi eins og Þjórsá og voru menn orðnir vel kenndir um 11 leitið. Eftir Eurovisionkeppnina var tekið fram Singstar þar sem að menn og konur sungu úr sér raddböndin. Svo voru þeir nokkrir sem að þurftu nú ekkert á singstar að halda og tóku meðal annars Liverpool slagarann "You´ll never walk alone" við góðar undirtektir manna og þá sérstaklega Liverpool manna. Haldið var í bæinn að partýi loknu og voru menn komnir heim um 6 leitið að mig minnir en það versta var að litli Geiri sinn var með synjað kort og gat því ekki keypt neitt þegar komið var í bæinn en það var líka allt í lagi þar sem að ég var orðinn svo helvíti léttur á mér :)

Síðustu tvær helgar hefur Hostile verið í stúdíói að taka upp 5 lög sem að vera svo gefin út seinna meir. Dust meðlimurinn Berti hefur verið að taka okkur upp og hefur þetta gengið mjög vel. Mórallinn er mjög góður í hljómsveitinni og erum við allir mjög spenntir fyrir komandi framtíð. Meðan ég man þá er titill kominn á plötuna og búið er að finna coverið. Því miður verður það ekki gefið upp hér fyrst heldur mun það birtast á Hostile síðunni þannig að checkið á henni for updates. Litli bróðir ætlar svo að taka upp myndband fyrir okkur en til gamans má geta að drengur tók upp nýja Sign myndbandið sem að hægt er að sjá á www.myspace.com/sign  . Drengurinn gerði þetta mjög vel og erum við spenntir að fá að vinna með honum í framtíðinni.

Annars á kallinn afmæli á morgun og er hann að verða 26 ára. Guð minn góður hvað tíminn líður hratt. Svo eru svona stelpur eins og Inga og Rakel að kvarta yfir því að vera 22 ára og 21. Give me a break. En maður er allavega á réttri hillu í lífinu núna og með framtíðina skipulagða eins og ég veit ekki hvað. Þannig á það líka að vera.

Segjum þetta þá gott í bili og lag dagsins er The Warmth með Incubus, tónleikaútgáfan. Snillingar, punktur!!!


» 16 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 07:51:38 / Geiri

What´s going on in the world today???

Alright, tími kominn á nýja bloggfærslu. Einhver leti búin að vera í manni síðustu daga og enda ekki mikið að segja frá. Það sem kannski ber hæst hjá mér núna er að um daginn þá fórum við, ég og Lúlli, og keyptum okkur far til LA. Kominn tími á að kíkja á gamlar slóðir. Förum við út 19. júní og fljúgum þá til Englands og ætlum við að vera þar í eina nótt. Morguninn eftir fljúgum við svo með British Airways til LA og verður þetta 11 tíma flug. En þó að það sé nú langt flug þá er það nú samt helvíti fljótt að líða vegna þess að hvert sæti er með skjá fyrir framan sig og þar er hægt að velja um ca. 15 glænýjar bíómyndir og ég veit ekki hvað margir sjónvarpsþættir. Einnig fylgir hverju sæti svona Goody bag en í honum eru sokkar, teppi, tannbursti og tannkrem og svona hlýfar til að setja yfir augun ásamt eyrnatöppum að mig minnir. Algjör snilld. Komum við svo til með að gista hjá vinum okkar á meðan dvöl okkar stendur. Einnig er verið að plana að fara til Vegas enda er það snilldar borg. Hef komið þangað tvisvar sinnum og alltaf jafn skemmtilegt í hitanum þar. Ferð okkar lýkur svo 5. júlí.

Hostile spilaði svo um daginn á Celtic Cross á vegum H-listans eða eitthvað álíka. Ásamt okkur var hljómsveit Alþingi sem stóðu sig helvíti vel og þeim hefur tekið miklum framförum síðan síðast. Skemmtilegir drengir í þokkabót. En meira um Hostile. Ný Hostile síða er komin í gang og hvet ég alla til að kíkja á hana. Linkurinn er hérna við hliðina. Endilega kvittið í gestabókina líka. Núna um helgina er svo hljómsveitin að fara í stúdíó að taka upp ca. 3-5 lög sem koma svo til með að verða dreifð um heiminn og svo í kjölfarið verður gert vídeó og þá komum við til með að þurfa á ykkar hjálp að halda en nánar um það síðar. Spennandi tímar framundan.

Svefninn er að gera út af við mig og það er ekki af því að ég sef of mikið heldur öfugt. Þar sem að ég hef ekki náð ennþá að setja lífsklukkuna í venjulegt horf þá hef ég verið að fara að sofa um 18 leitið og vaknað um 2-3 og ekkert getað sofið lengur. Hef því verið að hanga í tölvunni á þessum tíma eða horfa á bíómyndir og svo mætt í vinnuna klukkan 7. En í nótt náði ég að sofa næstum því eins og maður fyrir utan þetta helv... kvef sem að ég er með.

Og hvað er svo málið með þessa múslima???? Síðan hvenær varð tjáningarfrelsið bannað? Fyrir mitt leyti finnst mér að það ætti nú bara að nuke-a þetta lið. Ég skil vel að Múhammeð er the shit í þeirra augum en óþarfi að láta eins og hálvitar með þetta. Ég meina, það er búið að birta myndir í 16 löndum af þessum múhammeð þannig að það lítur út fyrir busy tíma hjá múslimum að ætla að ráðast á þessi lönd. Og svo þegar Jótlandspósturinn biðst afsökunar á þessum myndum að þá er það ekki nóg heldur vilija múslimar að öll danska þjóðin biðjist afsökunar á þessu. Svo um daginn var ráðist á pulsusala af múslimum vegna þess að hann var að selja svínakjöt. Give me a break!!!. Hvað er að þessu fólki??? Tjáið ykkur!!!

(ætli ég sé núna orðinn skotmark múslima með að birta þessa mynd af Múhammed eða....?)

Lag dagsins er Fuckin Hostile með Pantera....nýja coverlagið hjá Hostile (what a coincident:) )


» 18 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 03:32:49 / Geiri

Flug og fleira!!!

Eftir langan tíma á jörðinni gafst mér loksins færi á því í dag að komast í loftið. Eins og veðrið er búið að vera þá hefur bara alls ekki verið hægt að fljúga :( en í dag var smá glæta.

Núna var komið að því að klára 150 sjómílna flugið með viðkomu á tveim fluvöllum og fyrir valinu voru Vestmannaeyjar og Bakki. Ferðin gekk mjög vel og var svona hálfgert drungalegt veður þar sem að sólin var fyrir ofan skýin en gaf af sér smá glætu. En þetta byrjaði ekki vel þar sem að talstöðin mín var biluð þeim megin sem ég sat í vélinni og því þurfti ég að tengja headsettið á sætið við hliðina og tala með því að ýta á takka á hinu stýrinu, en sú sending brotnaði stundum og Reykjavíkurturn eflaust orðinn mjög pirraður á mér. En lendingarnar á Bakka og Eyjum heppnuðust mjög vel, smá rok í eyjum, en hvenær er alveg logn þar??? Svo var komið að því að fara á Flúðir og Geysi en það gerði mér nú erfitt að þoka var yfir þessum stöðum og því flaug ég yfir þessi ský sem að gerðu mér erfitt að finna þá. En eftir smá flug á þessu svæði ákvað ég að kalla þetta gott enda búinn að vera að fljúga í ca. 2 og hálfan tíma. Ferðinni var haldið heim þar sem það var nú að dimma mjög fljótt. Á slaginu 18 var ég lentur enda hefði ég ekki mátt vera mikið lengur í loftinu þar sem að ég er ekki kominn með næturáritun ennþá, en það styttist í það eins og margt annað. Núna eru bara ca. 2-3 tímar eftir og þá er það stóra prófið. Fólk orðið mjög spennt og liggur við að fyrstu ferðirnar séu uppbókaðar af fólki sem að langar að koma í smá útsýnistúr. Svo er ég orðinn einkaflugmaður hjá veiðimönnunum í vinnunni og kem ég væntanlega til með að fljúga með þá þvers og kruss um landið í leit að einhverju.

Vestmannaeyjar braut 31

Lenti á þessari braut í dag 8) (P.s. Vestmannaeyjaflugvöllur er á lista yfir hættulegustu flugvelli í heimi og þá væntanlega vegna þess að ef að þú missir mótor eða eitthvað álíka að þá endaru í sjónum)

Handboltinn er byrjaður ef að það hefur farið framhjá einhverjum og stendur Ísland sig bara mjög vel. Náði ekki að fylgjast með öllum leiknum í dag á móti Dönum en ég heyrði að hann hefði verið mjög spennandi og fólk hoppandi upp um öll sófasett í íbúðum og stökkvandi á gólf og hárreyta sig svo dæmi séu tekin. Annars er ég ekkert fyrir handbolta, fylgist með þessu einungis þegar landsleikir eru.

Núna er mikið rugl í gangi í vinnunni þar sem að menn eru að segja upp eins og þeir séu á extra launum við það. En ég óska þeim bara hins besta í því sem að við tekur hjá þeim. Samt er skelfilegt hvað við erum að verða fámannaðir, það þýðir mikil aukavinna framundan. Einnig er líka um mikil veikindi og skiptist það á milli manna hvort þeir séu að feika það eða ekki. Það geta allir komið hóstandi í vinnuna til að leika á samstarfsfélaga um að yfirvofandi veikindi séu framundan. En ef að svo er að menn séu að leika sér að þessu að þá finnst mér það helvíti skítt hvernig þeir koma fram við hina gaurana í vinnunni. Ég ætla ekki að fara nánar út í þetta.

Allavega, góða helgi fyrir ykkur sem eru í fríi, sum okkar þurfa að vinna 8)

Lag dagsins er Gimme Shelter með Rolling Stones


» 22 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 17:40:38 / Geiri

Kynlífskönnun

Þetta er snilldar könnun. Takið þetta próf og sjáið útkomuna. Hittir alveg naglann á höfuðið :)

www.yoursexappeal.com/test.php?test=617202


» 17 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 17:26:50 / Geiri

Ársyfirlit 2005!!!

Jæja, þá er kominn tími á að blogga og allir spenntir nema Símon, hann er Dímon :) Ætla ég í þessari færslu að stikla svona á því helsta sem að kom fyrir mig á síðasta ári en ég er ekki svo viss um að ég muni allt saman en látum á þetta reyna.

Janúar: Eftirminnilegast í janúar var myndbandsvinnan sem að ég og Lúlli gerðum fyrir vin okkar Mr. T. en hann átti einmitt 25 ára afmæli þá og var það haldið á Sólon. Myndbandið var í anda Hjálpum Þeim þar sem að við hóuðum saman svona helstu vinum hans og ættingjum til að taka þátt í þessu. En svo þegar kom að því að spila þetta að þá var ekkert hljóð í boði á Sólon en Trausti fékk þetta svo allt saman á DVD í lokin. Vinnan var auðvitað á sínum stað eins og vanalega.

Febrúar: Fór út að borða með bróður mínum á afmælinu mínu sem var mjög fínt og smakkaði í fyrsta skipti snigla sem reyndust vera þvílíkt góðir. Hitti Rannveigu eftir langan tíma.

Mars:  Greinilega ekki neitt merkilegt að gerast í mars. Vinna og þetta venjulega bara. Ef að ég er að gleyma einhverju þá endilega látið mig vita. Ég veit að Ingó og Dabbi Smári eiga afmæli í mars ásamt fleirum. Já, og ég byrja að blogga. Hitti Elvu í fyrsta skipti í mjög langan tíma ;)

Apríl: Davíð Smári dettur út úr Idolinu að mig minnir og Lubricant fer að æfa aftur að nýju. Það var nú gaman að rifja upp gamla tíma og lög með þeim félugum. Pabbi á afmæli og við förum út að borða, hehehe - svaka mikið að gerast :)

Maí: Kjallinn tekur þá ákvörðun að fara að læra flugið. Hostile heldur tónleika og sömuleiðis Lubricant á Amsterdam. Vinnan heldur áfram og fyrsti flugtíminn er floginn.

Júní: Hraðnámskeið í flugskólanum hefst og ég tek hálfgert sumarfrí sem nýtist í skólan og flugið. Ég og Lúlli förum til Ísafjarðar að hitta mellurnar og fleira fólk þaðan og endum ferðina á því að fara á Papa ball. Eitthvað sem að ég hélt að ég ætti aldrei eftir að fara á þar sem að ég þoli ekki þessa hljómsveit en thank god for alcohol :)

Júlí: Skólaprófin byrja í flugskólanum og kjallinn nær öllu í fyrsta með þrusu einkunnir. Brósi á afmæli, Fór á foo fighters með Lúlla. Dorian, félagi minn frá USA, tekur líf sitt með hjálp eiturlyfja. RIP, brother.

Ágúst: Flugmálastjórnarprófin byrja og kallinn fær líka þrusu einkunnir þaðan og var einn af sjö sem að náðu öllum prófunum í fyrsta 8). Ég tek sólóprófið með stæl. Ég og Mr. T kaupum græjur sem að Mrs. T er ekki hrifin af :) Menningarnótt og mikið drukkið.

September: Rannveig og Inga halda upp á afmælið sitt sem að ég mætti í fashionably late, aðallega vegna þynnku :) en ég bætti Rannveigu það upp með því að bjóða henni á Hereford stakehouse þar sem að hún prófaði í fyrsta skipti snigla og humar. Misgóðar undirtektir þar :) Miklar umræður fara í gang um staðsetningu reykjavíkurflugvallar við mjög slæmar undirtektir flugmanna. Síðasti mánuðurinn hjá Securitas. Fæ netið loksins inn á heimilið.

Október:  Hostile spila sína fyrstu headline tónleika og það er fullt út af dyrum. Spiluðum líka í TÞM og var tekin sú ákvörðun að spila aldrei þar aftur. Hættur hjá Securitas og byrjaður að vinna hjá Sendiráðinu. Lúlli á afmæli og því farið út að borða, gamalt tradition. Lúlli hættir að blogga. Flugið heldur áfram.

Nóvember: Týni debetkortinu mínu, eða því var týnt :). Fer að fljúga í brjáluðu veðri við borgarnes og gamalt fólk í umferðinni fer í taugarnar á mér :klikk:

Desember: Mamma á afmæli og heldur upp á það með pompi og prakt og bræðurnir taka lagið í afmælinu. Jólin, mikið eytt, mjög góð áramót. Er að vinna um jólin og fæ engan mat. Leiðinlegustu jól, ever!!! :) Snjóar, sem er ekki gott fyrir mann sem er á sumardekkjum :)

En þar með er þetta komið og var stiklað á stóru og eflaust mörgu gleymt en þetta var svona það helsta.

Lag dagsins er Heretic song með Slipknot. "if your 555, then I´m 666. What´s it like to be a heretic" Flott lag!!!


» 94 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 02:08:31 / Geiri

Nýtt ár gengið í garð!!!

                           

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Hvernig leggst svo nýja árið í ykkur??? Persónulega held ég að þetta verði gott ár. Ég held að það verði mikið að gerast í fluginu hjá mér. T.d. fæ ég einkaflugmannsprófið á þessu ári, ég byrja í atvinnuflugmanninum og svo er aldrei að vita hvað fleira ég kem til með að gera sem að tengist fluginu. Rannveig sagði að ég ætti að fara að blogga núna alla vega tvisvar í viku og ætla ég að reyna að standa við það. Get samt ekki lofað því en ég reyni að gera mitt besta.

Áramótin hjá mér voru mjög fín. Mér og bróður mínum var boðið í mat hjá vinafólki okkar þar sem að hún móðir mín ákvað að skella sér til Spánar með manninum sínum. Við bræðurnir vorum mikið að spá í að elda okkur bara big papas burgers um áramótin áður en okkur var boðið í þennan æðislega kalkún sem fyrir okkur var matreiddur. Í þessu matarboðið hitti maður fullt af fólki sem að ég hafði ekki séð í mjög langan tíma eða frá því að ég var ca. 12 ára. Gaman að sjá hvað sumt fólk hafði breyst og aðrir bara alls ekki neitt. Eftir matinn þá var ákveðið að byrja að skjóta upp einhverjum rakettum þar sem að keyptar voru ca. 12 kassar af kökum og 2 góðir fjölskyldupakkar og nokkrar stakar rakettur. Allt var þetta nú hin ágætasta ljósadýrð og hafði maður gaman af þessu.

Áramótaskaupið var hið ágætasta fannst mér. Mér ég séð þau mörg verri en líka betri. Mér fannst Björgvin Franz algjör snillingur þegar hann tók fyrir þessar helstu poppstjörnun landsins í dag. Hann náði þeim nú helvíti vel. Fyrir mér var hann nú skaupið.

Eftir allt þetta húllum hæ fór fólk að byrja að drekka og fjörið sömuleiðis. Gítararnir voru teknir út og líka rafmagnsgítar og því var þetta fína stuð byrjað. Led Zeppelin og Bítlalögin voruð spiluð í gríð og erg og þá sérstaklega Stairway to Heaven og Immigrant song. Þetta var bara hin bestu áramót og gaman að breyta aðeins til og fara annað um áramót. Var þetta líka í fyrsta skipti í langan tíma sem að ég var ekki að vinna, klöppum fyrir því :)

En ætli maður taki ekki svona árs annál í næstu færslu og fari í gegnum árið hjá manni eða allavega af því sem að ég man eftir.

Lag dagsins er Immigrant Song með meisturum Led Zeppelin. Flott lag og helvíti flott hvernig Jack Black tekur það í School of Rock :klikk: 


» 17 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 16:24:55 / Geiri

Gleðileg Jól!!!

Jólin að ganga í garð í þessum töluðu orðum. Þið sem þekkið mig vitið að ég er ekki jólabarn. T.d. hef ég verið að hlusta á Slipknot í allan dag nánast í stað þess að hlusta á eitthvað klassískt jólalag :) Samt getur maður ekki gert annað en að rifja upp gamlar jólaminningar.

Áður fyrr var alltaf venjan að amma kom til okkar um 4 leitið til að hjálpa okkur með matseldina. Svo um sex leitið þá var messan sett á og aldeilis hækkað í græjunum. Á meðan fór maður kannski inn í herbergi og spilaði á gítarinn eða setti ...And Justice for All í græjurnar og hafði sína eigin messu þannig :). Stuttu seinna var byrjað að borða hamborgarahrygg með brúnni sósu og brúnuðum kartöflum. mmmm, maður fær bara vatn í munninn. Spjallað var um heima og geima á meðan á borðhaldinu stóð og eftir mat var gengið frá og það varð að vera búið áður en byrjað var að opna pakka. En alltaf á þeim tíma þá kom að árlegum hlut hjá mér og það var að skreppa aðeins á klósettið. Þannig slapp ég við að þrífa diska og svoleiðis :) Svo var byrjað á því að útbýta pökkum og sáum við bræðurnir um að lesa á kortin og deila þessu út. Þegar það var allt saman búið þá voru pakkarnir opnaðir einn í einu svo að fólk gæti séð hvað hver og einn væri að fá frá hverjum. Eftir að hafa opnað allar gjafir og kýlt sig út af eftirrétt var maður oftast orðinn svo þreyttur að svefninn tók við stuttu seinna en hann var nú yfirleitt ekki langur þar sem að maður vaknaði svo snemma til að leika sér að þeim gjöfum sem að maður fékk. Svona voru jólin á mínu heimili en í dag eru breyttir tímar.

En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í dag og vil ég bara nota tækifærið til að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið það sem allra best yfir hátíðirnar. Vonandi fáið þið gott að borða og margar og góðar gjafir en umfram allt að þið séuð hjá fólki sem að ykkur þykir vænst um :)

GLEÐILEG JÓL!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 17:00:04 / Geiri

the world keeps on turning!!!

Já, þessi fleygu orð sagði söngvari eitt sinn við góðar undirtektir hljómsveitarmeðlima. En það breytir því ekki að núna er kominn tími á að blogga og ekki vissi ég að það væru svona rosalega margir sem að kíkja á bloggið og eru duglegir að kommenta.

En það er nú slatti búinn að gerast síðan ég almennilega bloggaði. Ég fór í progress check í fluginu sem er svona hálfgert próf til þess að athuga hvort að maður sé nú ekki nokkuð fær á að bjarga sér þegar maður flýgur einn á flugvelli út á landi. Kallinn kláraði þetta með stæl þannig að núna má ég fljúga einn út á landi, og því miður fyrir ykkur sem eru að bíða eftir að fá að koma með mér í flugferð, þá verðið þið að bíða aðeins vegna þess að þetta var ekki alvöru prófið. Það kemur vonandi í janúar.

En annars var fyrsta flugferðin farin á dögunum í frábæru veðri. (núna væri gott að eiga myndavél) Fór ég á Geysi og Flúðir og var með félugum mínum úr einkaflugmanninum í samfloti á annari vél. En þegar við erum að fara til Reykjavíkur þá dregur svona svakalega fyrir sólu að við þurftum að breyta aðeins ferðinni okkar og fljúga yfir heiðina, rétt fyrir ofan bílana á 240 km/klst. En eitthvað þurfti maður að gera til að komast heim. Ekki nóg með það, heldur þegar ég lendi þá er svona rosalega mikil hálka á brautinni að vélin mín byrjar bara að renna og minnstu munaði að yours truly hefði lent út á grasi. En þetta reddaðist og allir sluppu ómeiddir. Skemmtilegt að brjóta aðeins upp á þetta heldur en þessar venjulegu lendingar sem að maður gerir. :)

Mamma átti 50 ára afmæli á sunnudaginn og í tilefni þess var haldin þessi rosalega veisla. Fullt af fólki mætti en hápunkturinn var hins vega þegar ég og bróðir minn komum saman hljómsveit og tókum lögin Penny Lane með bítlunum og I´m a believer með the monkees. En textunum var aðeins breytt til þess að hafa þetta á aðeins persónulegum nótum. En þetta gekk vel og var mikið rokk. Eftir þetta var svo eftirpartý hjá mömmu en ég var nú ekki lengi þar í veislunni þar sem að ég var svo þreyttur eftir að hafa verið vakandi alla nóttina í vinnunni. Ég fór því og lagði mig :)

en segjum þetta gott í bili. lag dagsins er come clarity með in flames. Lag í rólegri kantinum en algjör snilld eins og reyndar allur nýji diskurinn.


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 16:34:25 / Geiri

Helvítis klukkanir alla tíð!!!

SETTU NAFNIÐ ÞITT Í KOMMENTIN HJÁ MÉR OG....
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

7. Ef þú lest þetta verður þú að setja þetta á bloggið þitt

Og til að taka það fram að þá er þetta síðasta klukkunin eða hvað sem þetta er sem að ég geri. Núna er kominn spegill á síðuna hjá mér þannig að öll klukkun kemur ekki til skila

Setjið þennan spegil á síðuna ykkar ef að þið viljið losna við klukk!!!

En ég lofa að næsta færsla verður eitthvað til að lesa um fyrir ykkur dyggu áðdáendur :)


» 116 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6